top of page

Lakkrístoppar
3 eggjahvítur
200 gr púðursykur
150 gr rjómasúkkulaði
300 gr lakkrískurl
Stífþeytið eggjahvíturnar, bætið púðursykrinum við og þeytið áfram þar til sykurinn er alveg horfinn. Bætið söxuðu súkkulaði og lakkrískurli við. Setjið með teskeið á plötu með bökunarpappír og bakið við 175°C í 12-14 mínútur.
bottom of page